Opnar vinnustofur um sjálfbærni

Umhverfi

""

Kynning á opnum vinnustofum sem stuðla að sjálfbærni verður haldin mánudaginn 25. ágúst kl. 12.00 í Borgartúni 12 – 14. Vinnustofurnar eru mjög áhugaverðar fyrir trésmiði, arkitekta, hönnuði og allt fólk með áhuga á sjálfbærri þróun.

Vinnustofurnar, sem haldnar eru undir yfirskriftinni, Nýir lífshættir í þéttbýli, hafa það að markmiði að virkja íbúa til að nýta vistfræðilegar grunnstoðir í borgarrýminu til að skapa og móta í tilraunaskyni víðtæk og endurnýtanleg tól með sjálfbærni að markmiði.

Maé og Elíza frá PEZ stúdíóinu á Spáni verða leiðbeinendur í vinnustofunum og munu m.a. sýna hvernig hægt er að hanna og smíða fjölnota hluti fyrir almenningsrými, t.d. bekki, borð og stóla úr ýmsum efniviði en einnig færanlegt sólarorkudrifið eldhús.

Kynningin verður haldin mánudaginn 25. ágúst kl. 12.00 í húsakynnum Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12 - 14 í Vindheimum á sjöundu hæð og eru allir velkomnir.

Vinnustofan sjálf hefst daginn eftir 26. ágúst og stendur yfir til 30. ágúst og verður unnið í Grasagarðinum. Unnið verður frá kl. 9.30 til 12.30 og 13.30 til 17.00.

Aðgangur frír, staðfesting verður send eftir að eyðublað hefur verið fyllt út.

Frekari upplýsingar.

Viðburðurinn á Facebook.

Skráningareyðublað.