Opinber umfjöllun um börn

Velferð Skóli og frístund

""

Opinber umfjöllun um börn og ábyrgð foreldra og fjölmiðla í því samhengi er spurning sem varpað er fram á fundi hjá Náum áttum sem haldin verður á Grand hótel miðvikudaginn 29. október kl. 8.15-10.00.

Fundurinn veltir upp þeirri spurningu hvort hagsmunum barna sé gætt í opinberri umræðu fjölmiðla um málefni barna, ekki síst einstaklinga.

Náum áttum er forvarna- og fræðsluhópur um velferð barna og unglinga.

Þar munu halda erindi:

  • Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, blaðamaður og lögfræðingur, er með erindið Umfjöllun um börn í fjölmiðlum;
  • Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, fjallar um rétt barna gagnvart fjölmiðlum;
  • Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HÍ, heldur erindi sem heitir Opinber umfjöllun um afbrot barna.



Fundarstjóri verður Elísabet Gísladóttir, og mun hún stjórna umræðum eftir að erindi hafa verið flutt.  Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.100 krónur en innifalið í því er morgunverður. Fundirnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir.

Auglýsing fyrir morgunverðarfund Náum áttum 29. október 2014.