Opið hús á Korpúlfsstöðum

Mannlíf Menning og listir

""

OPIÐ HÚS verður á Korpúlfsstöðum laugardaginn 1. mars milli kl. 13:00 - 17:00.

Vissir þú....

.. að það starfa í dag um 40 listamenn á Korpúlfsstöðum ....?

.. að listamenn bjóða gesti velkomna inn á vinnustofur sínar 1. mars...?

.. að á Korpúlfsstöðum er rekið ”Gallerí Korpúlfsstaðir”....?

.. að á Korpúlfsstöðum er ”Litli Bóndabærinn” með kaffisölu....?

.. að sýningin ”Kjallara Mottur” er sýning mánaðarins í Örsalnum á Korpúlfsstöðum...?

.. að söngur og ljúf tónlist mun óma um sali Korpúlfsstaða á Opnu Húsi...?

Á Korpúlfsstöðum eru allir listamenn félagsmenn SÍM og bjóða þeir gestum til sín 4 sinnum á ári til að koma og upplifa hvað er að gerast innandyra Korpúlfsstaða.

Vertu hjartanlega velkomin til okkar 1. mars. milli kl. 13:00 - 17:00 og taktu vini og fjölskyldu endilega með.