Öldurót tímans í Breiðholti

Mannlíf Menning og listir

""

Leit þáttagerðarfólks Ölduróts tímans að húsi í Breiðholtinu hefur borið árangur. Hjónin Valgeir Sigurðsson og Sigríður Sunna Reynisdóttir bjóða þættinum í heimsókn þriðjudaginn 1. júlí. Hafi einhver áhuga á að mæta á upptökuna, sem fram fer þriðjudaginn 1. júlí að kvöldi til er viðkomandi beðin vinsamlegast um að senda beiðni á tölvupóstinn oldurotid@gmail.com.

Í þessum öðrum þætti af Ölduróti tímans verður fjallað helgun rýmisins og helgun tímans. Við rannsökum jörðina og hringinn og núllið. Við tökumst á loft, út í svartan himingeiminn, en pössum okkur á því að glata ekki jarðtengingunni, því án hennar værum við þyngdarlaus eins og strengur sem hefur engan hljómbotn.  

Þátturinn nýtur stuðnings úr Heita pottinum, menningarsjóði Reykjavíkurborgar og Hins hússins, sem styrkir menningarverkefni í Breiðholtinu. Breiðholtið verður í sérstökum fókus, við heyrum raddir Breiðhyltinga sem hafa helgað sér þennan ákveðna stað í heiminum.