Lifandi gjörningalist var í Íbúðinni Ungmennahúsi á dögunum.
Íbúðin Ungmennahús stóð fyrir vel heppnuðum viðburði í tengslum við Unglist, listahátíð ungs fólks sem nefndist Ó mæ list!
Þar gafst ungu skapandi listafólki tækifæri til að koma fram með verk sín, eiga spjall við gesti og gangandi og skoða hvað aðrir eru að fást við.
Af þeim rúmlega 10 verkum sem sýnd voru á kvöldinu má nefna vegglistaverk við inngang Íbúðarinnar sem Halldór Jóhann Gunnarsson 22 ára vann að á meðan viðburðinum stóð, upplestur úr skáldsögu sem Arnór Steinn Ívarsson 19 ára er að vinna að og málverk eftir Oddnýju Svövu Steinarsdóttur 17 ára.
Frábær stemmning myndaðist á þessum skemmtilega viðburði og greinilegt að mikil gróska er í listsköpun og tjáningu hjá ungu fólki.
Íbúðin Ungmennahús er vettvangur fyrir fólk á aldrinum 16-25 ára þar sem ungt listafólk fær tækifæri til að skapa sitt eigið rými og finna áhugamálum sínum farveg. Hefur starfsemin haft aðsetur í Safamýri 5 frá því í febrúar 2013.
Hægt er að fylgjast með gjörningum í Íbúðinni á Facebook.