Nýtt frístundaheimili rís við Vogaskóla

Skóli og frístund Framkvæmdir

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að heimila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við frístundaheimilið Vogasel við Vogaskóla. Gert er ráð fyrir allt að 110 börnum í Vogaseli.

Frístundaheimilið verður 342 fermetrar og er steinsteypt á einni hæð.  Steypt stétt og grasflöt á yfirborði þakflatar tengist leiksvæði skólalóðarinnar við Vogaskóla.  Hönnun viðbyggingar er að fullu lokið og verður verkið boðið út í nóvember. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við Vogasel hefjist í upphafi árs 2015 og eru áætluð verklok í árslok það sama ár.

Heildarkostnaður við verkið er áætlaður 165 milljónir króna. Inni í þeirri tölu er frágangur hússins að innan og utan, frágangur lóðar og laus búnaður inni í húsinu. Arkitektastofan Studio Granda sá um hönnun frístundaheimilisins.

Vogasel frístundaheimili.