Nýtt bókasafn í Norðlingaholti

Skóli og frístund Mannlíf

""

Nýtt bókasafn fyrir almenning var opnað í Norðlingaskóla á dögunum. Það verður rekið af Borgarbókasafni í samstarfi við skólabókasafnið.   

Við opnunarathöfnina sungu nemendur og stjórnendur Borgarbókasafns og skólans tóku til máls. Nýtt bókasafn í Norðlingaholti er innréttað með nýjum húsbúnaði og er fullt af glænýjum bókum. Sérstakt ánægjuefni er að opnun bókasafnsins ber upp á tíu ára afmæli Norðlingaskóla og má segja að með því hafi hann náð fullum blóma í nýja húsnæðinu.



Nýja bókasafnið er enn sem komið er smátt í sniðum en reynt verður að bjóða upp á  úrval af nýjum og áhugaverðum bókum fyrir alla aldurshópa.

Safnið verður opið almenningi frá kl. 14-18 alla virka daga en er lokað í skólafríum. Bókasafnið er tilraunaverkefni til þriggja ára en vonast er til að þetta fyrirkomulag bæti þjónustu við nemendur, leikskólabörn og aðra íbúa í Norðlingaholti og efli jafnframt hlut skólans sem miðstöð menningar- og tómstundastarfs í hverfinu.