Nýr samningur við Íþróttafélag Reykjavíkur

Íþróttir og útivist

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag nýjan samning við Íþróttafélag Reykjavíkur. Samningurinn er til ársins 2020 og var hann undirritaður í beinu framhaldi af Jóni Gnarr borgarstjóra og Hjálmari Sigurþórssyni formanni ÍR.

Reykjavíkurborg mun samkvæmt samningnum þegar hefja undirbúning að nýjum æfingavelli fyrir frjálsar íþróttir á ÍR-svæðinu við Mjódd, en frjálsíþróttadeild ÍR er ein sú stærsta í Evrópu.

Til viðbótar munu Reykjavíkurborg og ÍR í sameiningu fara yfir skipulag íþróttamannvirkja ÍR í Suður-Mjódd með eftirfarandi að leiðarljósi:

  • aðal knattspyrnuvelli félagsins verði snúið;
  • að áhorfendasvæðum verði komið fyrir við knattspyrnuvöll;
  • að grasæfingasvæði verði snúið og sett við hliðina á aðal knattspyrnuvelli;
  • að gervigrasvöllur verði óbreyttur;
  • að svæði fyrir púttgolfvöll fyrir eldri borgara verði komið fyrir nálægt Árskógum;
  • að skoðuð verði þörf á bættum bað- og búningsklefum, m.a. vegna frjálsíþróttavallar.

Samkvæmt samningnum mun ÍR  áfram reka íþróttahús Seljaskóla og íþróttahús við Austurberg, en félagið hefur haft reksturinn með höndum sl. þrjú ár. Um er að ræða fullkomin handbolta- og körfuboltahús,  en þau hafa bæði verið tekin í gegn síðustu ár, skipt um gólf og áhorfendaaðstaða endurbætt þannig að þau teljist keppnisvellir í fremstu röð. 

Þegar endurskipulagningu svæðisins í Suður-Mjódd er lokið, fyrir 1. maí 2014, munu Reykjavíkurborg og ÍR gera sérstakan samning um framkvæmdir, fjármögnun og tímaröð framkvæmda á svæðinu.

Samkvæmt samningnum er ákveðið að fresta öllum fyrirhuguðum framkvæmdum við byggingu íþróttamannvirkja á vegum félagsins í Suður-Mjódd en ákvörðun um byggingu íþróttahús á svæðinu verður tekin fyrir 1. febrúar 2019.