Sigþrúður Erla Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar.
Sigþrúður hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá árinu 1998, fyrst í Miðgarði, sem þá hét fjölskylduþjónusta Grafarvogs og frá árinu 2005 sem deildarstjóri sérfræðisviðs á þjónustumiðstöð Vesturbæjar auk þess að hafa síðustu tvö ár verið starfandi staðgengill framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðvarinnar.
Sigþrúður hefur BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og Master of Arts in Clinical Psychology frá Pepperdine University. Auk þess hefur Sigþrúður lokið rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, námi í hugrænni atferlismerðferð frá sama skóla auk þess að hafa stundað meistaranám við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Sigþrúði er óskað velfarnaðar í starfi.