Mannréttindaskrifstofa hefur gefið út bækling fyrir rússneskumælandi foreldra um barnauppeldi, foreldrahlutverkið og annað sem viðkemur skyldum foreldra og réttindum barna. Sams konar bæklingur er þegar til á ensku, pólsku og filippseysku, en hvert eintak er jafnframt á íslensku.
Bæklingurinn miðlar hagnýtum upplýsingum fyrir foreldra og aðstandendur barna og er hann skemmtilega myndskreyttur. Meðal þess sem fjallað er um eru barnaverndarlögin, réttindi barna og viðbrögð við ofbeldi gegn börnum. Þá eru gefin góð ráð um árangursríkar leiðir í barnauppeldi og vísað til þess hvar megi sækja sér félagslega ráðgjöf og aðstoð.
Bæklingurinn er aðgengilegur á vef mannréttindaskrifstofu. Einnig er hægt að fá hann sendan með því að senda póst á mannrettindi@reykjavik.is eða hafa samband í síma 411 4153.
Við og börnin okkar (íslenska / rússneska).