Nýlistasafn Reykjavíkur flytur í Völvufellið

Menning og listir

""
Borgarráð hefur samþykkt að að úthluta Nýlistasafninu 400 fermetra húsnæði í Völvufelli 13 - 21 í Breiðholti. Safnið sem hefur verið til húsa á Skúlagötu er einstakt í menningarflóru borgarinnar og eitt elsta starfandi listamannarekna listasafn í Evrópu. 
 
 
Nýló, eins og það er gjarnan kallað, var stofnað árið 1978 og var tilgangur með stofnun þess fyrst og fremst að opna listheiminn á Íslandi fyrir nýjungum, með það að markmiði að gefa fleiri myndlistarmönnum kost á að vinna að list sinni hérlendis. Í dag er starfsemin tvíþætt; að safna og varðveita samtímamyndlist annarsvegar og að þjóna sem sýningavettvangur framsækinnar myndlistar hinsvegar. 
 
Samingurinn nú við Nýlistasafnið um húsnæðið í Völvufelli auðgar menningarlífið í nærumhverfinu í Breiðholti með sýningahaldi, fræðslu og rannsóknum. Menningarleg uppsveifla er þegar hafin á svæðinu með tilkomu Fab Lab Reykjavík að Eddufelli 2. 
 
Nýló mun flytja í nýja húsnæðið á næstu vikum og koma safneign sinni í öruggt skjól. Til að byrja með verður opið hluta úr viku í Völvufellinu og verða sýningartímar auglýstir síðar.