Nýir leikskólastjórar í Laugasól og Bakkabergi
Edda Margrét Jensdóttir var ráðin leikskólastjóri í Bakkabergi og Helga Ingvadóttir leikskólastjóri í Laugasól.
Gengið hefur verið frá ráðningum nýrra leikskólastjóra í Bakkabergi og Laugasól.
Edda Margrét Jensdóttir var ráðin leikskólastjóri í Bakkabergi. Hún útskrifaðist sem leikskólakennari úr Fósturskóla Íslands 1976, lauk diplomaprófi í stjórnun við sama skóla 1988 og diplomaprófi í uppeldis- og menntunarfræði við framhaldsdeild með áherslu á sérkennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands 2004. Edda Margrét hefur starfað sem leikskólastjóri í 30 ár, þar af hjá leikskólum Reykjavíkurborgar í 8 ár, og verið aðstoðarleikskólastjóri í þrjú ár.
Fimm sóttu um stöðu leikskólastjóra í Bakkabergi.
Helga Ingvadóttir var ráðin leikskólastjóri í Laugasól. Hún lauk leikskólakennararprófi frá Fósturskóla Íslands 1994 og B.Ed. í leikskólakennarafræði frá Kennaraháskóla Íslands árið 2008.
Helga hefur starfað sem leikskólastjóri í 13 ár og sem aðstoðarleikskólastjóri í 6 ár.
Fimm sóttu um stöðu leikskólastjóra í Laugasól.