Ný sérdeild fyrir einhverfa við Háaleitisskóla

Skóli og frístund

""

Nýrri sérdeild fyrir einhverfa verður komið á fót við aðra af starfsstöðvum Háaleitisskóla, þá er heitir Hvassaleiti. Skóla- og frístundaráð ákvað það á fundi sínum í gær.  

Deildin, sem er sú fimmta við grunnskóla í Reykjavík,  mun taka til starfa á hausti komanda. Skólaráð Háaleitisskóla hefur fjallað um þessi áform og fagnar þeim.

Í sérdeildum fyrir einhverfa nemendur er lögð áhersla á að námsaðstaða sé miðsvæðis í skóla og að börnin geti í leik og starfi tengst sínum jafnöldrum sínum í almennum bekkjum. Markmið deildanna er þannig að sinna einstaklingsmiðaðri kennslu og styðja við nám í almennu skólastarfi með öflugu samstarfi kennara sérdeildarar og annarra við skólann.