Nýjungar í styrkveitingum borgarinnar til menningarlífsins. Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar útnefndi Nordic Affect Tónlistarhóp Reykjavíkur 2014.
Styrkhafar 85 menningarverkefna tóku við styrkjum í Tjarnarbíó 22. janúar. Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar útnefndi þar Nordic Affect Tónlistarhóp Reykjavíkur 2014. Tónlistarhópurinn lék við athöfnina Clockworking eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur við myndbandsverk eftir Þorbjörgu Jónsdóttur.
Listrænn stjórnandi Nordic Affect frá upphafi er Halla Steinunn Stefánsdóttir sem vitnaði í þakkarræðu í Jordi Savall og sagði: „Öll lifandi tónlist er tónlist okkar tíma“. Starf Nordic Affect einkennist af nýstárlegri nálgun og frumleika í verkefnavali en hópurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að flytja tónlist 17.og 18. aldar í bland við spennandi tónsköpun okkar tíma. Nordic Affect hefur komið fram víða um lönd, pantað og frumflutt fjölmörg verk, gefið út geisadiska, hlotið margs konar viðurkenningu og frábærar viðtökur í erlendum tónlistarblöðum. Meðal verkefna næstu mánaða er vetrartónleikaröð í Reykjavík, þátttaka í Myrkum Músíkdögum, TRANSIT festival í Belgíu, November Music í Hollandi, Listahátíð í Reykjavík, Copenhagen Renaissance Festival í Danmörku, Sumartónleikum í Skálholti og á Álandseyjum.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson er nýr framkvæmdastjóri Tjarnarbíós og kallaði hann eftir hugmyndum svo staðurinn gæti orðið sannkölluð sköpunarmiðstöð og heimili allra listforma þó áhersla væri á sviðslistir. Eftir endurbætur á húsinu verður starfsemin veruleg efld á þessum vettvangi. Auk húsnæðisframlagsins styrkir borgin rekstur Tjarnarbíós um 10 milljónir á ári með samningi til þriggja ára.
Þá hafa nú tónlistarhátíðirnar Sónar Reykjavík, Reykjavík Midsummer Music og Tectonics tónlistarhátíðin fengið þriggja ára samning, Sónar með 4 m.kr. á ári, en hinar 2. m.kr. hvor, þökk sé Borgarhátíðasjóði, sem ætlað er að örva nýsköpun í hátíðahaldi í Reykjavík. Fyrir styrkjaúthlutun í upphafi árs voru tíu borgarhátíðir þegar með samninga vegna framlags árið 2014 fyrir samtals 35,5 m.kr.
Stærstu styrkir til eins árs eru vegna Kvikmyndahátíðar í Reykjavík 2014, 8 m.kr. og Kammersveit Reykjavíkur, Stórsveit Reykjavíkur og Caput hljóta 1,8 m. hver. Aðrir styrkir nema allt frá 100 til 1100 þúsund krónum.
Áherslur menningar- og ferðamálaráðs fyrir 2014 eru aukið aðgengi og þátttaka nýrra hópa í menningunni, börn og menningaruppeldi, samstarf eininga, stofnana, listgreina og listamanna, bókmenntaviðburðir eða verkefni til eflingar Reykjavíkur sem Bókmenntaborg UNESCO.
Ráðgefandi faghópur um styrki skipaður fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna ( BÍL) hafði 175 umsóknir til umfjöllunar og alls var sótt um rúmar 268 milljónir króna. Niðurstöður menningar- og ferðamálaráðs um styrkveitingar byggja alfarið á úthlutunartillögum faghópsins sem námu kr. 67,2 m.kr..
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar skipa: Einar Örn Benediktsson formaður, Margrét Kristín Blöndal, Eva H. Baldursdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir og Davíð Stefánsson.
Ráðgefandi faghóp frá Bandalagi íslenskra listamanna um styrkina skipuðu: Gunnar Hrafnsson formaður, Ólöf Nordal, Randver Þorláksson, Magnea J. Matthíasdóttir og Valdís Óskarsdóttir.