Á alþjóða tennisdeginum 3. mars fór fjölmennur hópur nemenda og starfsmanna í Klettaskóla í Tennishöllina til að leika og keppa.
Í Tennishöllinni hittu þau fyrir ýmsa forkólfa tennisíþróttarinnar á Íslandi, Íslandsmeistara í yngri aldursflokkum og formann Tennissambandsins.
Leikjamótið var sett með viðhöfn, nemendur og meistarar kynntir og skólastýra Klettaskóla veitti viðtöku gjöfum frá Tennissambandinu. Þá var farið í tennis með ýmsum tilbrigðum, þar sem skemmtanagildið var í forgrunni. Loks var öllum boðið upp á bollur í tilefni tennis- og bolludags.
Nemendur og starfsmenn í Klettaskóla hafa verið heimagangar í Tennishöll Kópavogs undanfarin skólaár og hefur Luigi Bartolozzi, starfsmaður skólans og tennisþjálfari, verið óþreytandi við að treysta bönd skólans við tennisíþróttina.