Nemendur í hjólastól fá nýja rólu

Skóli og frístund Mannlíf

""

Nýstárleg róla sem hönnuð er fyrir nemendur í hjólastól var tekin í notkun á leiksvæði Klettaskóla í morgun.  

Rólan er íslensk framleiðsla og er með þeim allrafyrstu af þessari gerð í landinu. Ferlinefnd Reykjavíkurborgar fjármagnaði róluna, sem er afar sterklega byggð með veglegri öryggisgirðingu.

VIð fyrstu prufukeyrslu í vorsólinni var ekki annað að sjá en að þessi nýstárlega róla vekti gleði og eftirvæntingu og frímínúturnar verða því án efa líflegri fyrir þá nemendur sem eru í hjólastól.