Náttúrugöngur að vori

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Í maí munu Borgarbókasafn Reykjavíkur og Reykjavík-iðandi af lífi taka höndum saman og bjóða upp á fræðandi og skemmtilegar náttúrugöngur um næsta nágrenni fjögurra bókasafna. 

Náttúrufræðingar munu leiða göngurnar og mun hver ganga hafa sérstakt þema. Hver ganga tekur um klukkustund og verður boðið upp á kaffi á eftir í húsakynnum bókasafnsins. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Umsjónarmaður með náttúrugöngunum er Snorri Sigurðsson líffræðingur og verkefnisstjóri Reykjavík-iðandi af lífi en honum til halds og traust verða góðir gestir.

Fyrsta gangan fer fram laugardaginn 3. maí frá Sólheimasafni, Sólheimum 27 kl 14:00 og mun bera heitið Náttúran vaknar. Gengið verður frá safninu niður í Laugardal og skoðuð ummerki þess að sumarið er á næsta leyti – spáð í vöxt gróðurs, fuglalíf og smádýr og hvernig þessar lífverur bregðast við árstíðabreytingunum.

Önnur gangan verður laugardaginn 10. maí frá Foldasafni, Grafarvogskirkju kl 10:30 og verður þemað Dagur farfuglanna í tilefni þess að þá er alþjóðlegur dagur farfugla. Leirurnar í Grafarvogi eru mikilvægur viðkomustaður farfugla á vorin og haustin, einkum vaðfugla. Gengið verður frá Grafarvogskirkju meðfram voginum, stillt upp sjónaukum og fylgst með fuglalífinu á leirunum.

Þriðja gangan verður sunnudaginn 18. maí frá Ársafni, Hraunbæ 119 kl 14:00. Gengið verður niður í Elliðaárdal og verður viðfangsefni göngunnar Gróður og saga. Gestir verða fræddir um hið fjölbreytt gróðurfar Elliðaárdals og hvernig það hefur breyst frá fyrri tíð.

Fjórða og síðasta gangan verður laugardaginn 24. maí frá Gerðubergssafni í Breiðholti kl 14:00 og mun sú ganga heita Dagur farfiskanna. 24.maí er alþjóðlegur dagur farfiska og er haldið upp á hann víða um heim. Gengið verður niður að Elliðaám og gestir fræddir um laxagöngur og annað lífríki í ánum.

Veggspjald um náttúrugöngurnar