Námskeið fyrir fjölskyldur í Vesturbæ

Skóli og frístund Umhverfi

""

Laugardaginn 1. nóvember kl 14:00-16:00 verður haldið námskeiðið "Göngum græn skref saman" í frístundamiðstöðinni Frostaskjóli. 

Í haust hefur frístundamiðstöðin Frostaskjól staðið fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir fjölskyldur. Þau hafa verið vel sótt og hefur verið gaman að fylgjast með foreldrum og börnum fræðast og eiga góða stund saman.



Laugardaginn 1. nóvember kl 14:00-16:00 verður námskeiðið "Göngum græn skref saman". Á námskeiðinu lærir fjölskyldan að verða meðvitaðari um umhverfið sitt og að taka skref í átt að grænum lífstíl. Námskeiðið er sett upp á skemmtilegan hátt þannig að bæði ungir og aldnir geti haft gagn og gaman af.



Við hvetjum foreldra að skrá sig með börnunum sínum en þátttökugjaldi er haldið í lágmarki og er 1.500 kr. fyrir fullorðna, hálfvirði fyrir 10-16 ára og frítt fyrir börn yngri en 10. Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið liljabjargey@gmail.com.

Frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu Frostaskjóls.