Munið kynningarfund um Betri Hverfi 2014
Kynningarfundur um hugmyndir að verkefnum í Árbæ sem bárust inn á vefinn Betri hverfi 2014 verður haldinn í dag, 19. febrúar í frístundamiðstöðinni Árseli, Rofabæ kl. 17 - 18. Allir velkomnir.
Dagana 11. - 18. mars verða haldnar rafrænar hverfakosningar um verkefni í Betri hverfum. Áður en að því kemur er boðað til kynningarfunda með íbúum til að fara yfir þær hugmyndir sem bárust inn á vefinn Betri hverfi í nóvember. Uppstillingu hugmynda er nú óðum að ljúka í hverfunum en fagteymi Reykjavíkurborgar og hverfisráðin sjá um þá vinnu. Farið verður yfir allar hugmyndir sem bárust í hverfunum á fundunum, bæði þær sem stillt verður upp í kosningunum og þær sem ekki voru valdar. Yfir 400 hugmyndir bárust inn á vefinn frá íbúum. Á fundunum verður hægt að spyrja spurninga um ferlið og koma með athugasemdir. Þá eru hugmyndir um framtíð og þróun verkefnisins Betri hverfi sérstaklega velkomnar.