Á fundi yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur milli kl. 10 og 12 í morgun mættu fulltrúar átta framboða og afhentu yfirkjörstjórn framboðslista auk lista yfir meðmælendur.
Framboðin eru Alþýðufylkingin, Björt framtíð, Dögun, Framsókn og flugvallarvinir, Píratar, Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin - grænt framboð. Starfsfólk yfirkjörstjórnar vinnur að yfirferð listanna fram eftir degi. Yfirkjörstjórn stefnir að því að funda kl. 12.30 á morgun og úrskurða um gildi framboðslistanna og kjörgengi frambjóðenda.