Vegglistaverk sem nemendur hafa unnið við í þrjú ár hefur nú verið afhjúpað í anddyri Álftamýri, annarrar af tveimur starfsstöðvum skólans.
Það var haustið 2010 sem nemendur í myndmenntavali byrjuðu að teikna grunnmynd að listaverkinu með sjó og sjávardýr að leiðarljósi. Síðan hafa þeir unnið jafnt og þétt að þessari glæsilegu mósaíkmynd samhliða hefðbundnu myndmenntanámi. Einnig hefur vinna við myndina verið valverkefni í námsverinu.
Margrét Auðuns myndmenntakennari hafði alla umsjón með vinnslu mósaíkmyndarinnar sem tekið hefur margar vinnustundir. Listaverkið var svo tilbúið í síðustu viku og hefur verið sett upp í anddyri starfsstöðvarinnar við Álftamýri, nemendum og starfsfólki til óblandinnar ánægju.