Á dögunum fór fram uppfærsla á Mínum síðum - Rafræn Reykjavík. Tæknileg vandamál hafa valdið því að kerfið er hægvirkt og unnið er að viðgerð.
Vegna tæknilegra vandamála eftir uppfærsluna á Mínum síðum -Rafrænni Reykjavík er kerfið hægvirkt í vinnslu þessa dagana. Unnið er að lagfæringum og beðist er velvirðingar á óþægindum sem af þessu hlýst.