Miklar endurbætur á skólalóð Breiðholtsskóla

Skóli og frístund

""

Börnin í Breiðholtsskóla eru hæstánægð með þær endurbætur sem gerðar hafa verið á lóð skólans en með þeim hafa þau m.a. fengið ný leiktæki og betri aðstöðu til útináms. 

Unnið var að þessum endurbótum á skólalóðinni í sumar og fólst vinnan m.a. í því að setja upp klifurvegg, hlaupakött og önnur leiktæki. Einnig var aðkoma að skólanum bætt til mikilla muna, endurbætur gerðar á tröppum, útbúin steinabeð með hleðslum og gróðursett tré. Steinveggur sem aðgreindi leiksvæði við skólann var einnig endurgerður og land mótað til að gera leik- og námsaðstöðu enn fjölbreyttari.

„Hér eru allir svo glaðir með þessar breytingar á skólalóðinni“, segir Anna Sigríður Pétursdóttir aðstoðarskólastjóri í Breiðholtsskóla.  „Krakkarnir eru duglegir að leika sér í frímínútum en einnig nýtist lóðin öllum hverfisbúum eftir skóla og um helgar.“ 

Framkvæmt verður fyrir 345 milljónir króna á lóðum sjö grunnskóla á þessu ári. Fyrir utan endurbætur á lóðinni við Breiðholtsskóla var í sumar ráðist í 1. áfanga af endurgerð lóðar við Árbæjarskóla, Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla og Ölduselsskóla og sett voru upp boltagerði á skólalóðunum við Kelduskóla/Vík og Melaskóla

Sjá frétt um endurbætur á skólalóð Fossvogsskóla.

Sjá frétt um nýja hreystibraut við Hagaskóla.