Mikill tungumálaforði í skólunum

Skóli og frístund

""

Í nýlokinni móðurmálsviku var tungumálaforði í mörgum skólum skráður í fyrsta sinn. 

Margir leik- og grunnskólar skráðu tungumálaforða sinn í móðurmálsvikunni sem lauk föstudaginn 28. febrúar. Í umræðum sem spunnust í skólunum í tengslum við þessa skráningu kom fram stolt og gleði barnanna yfir að eiga svo mörg mál og aukin vitund um gildi þess fyrir samfélagið allt. Þetta er í fyrsta sinn sem tungumálaforði skóla er skráður á þennan hátt og er hægt að kynna sér þann auð á tungumálatorginu og halda skráningu áfram fyrir þá sem ekki náðu því í vikunni.   

Margt annað var brallað í móðurmálsvikunni, m.a. voru lestrarstundir á bókasafninu í Gerðubergi þar sem sögur voru lesnar á ýmsum tungumálum og samtökin Móðurmál í samstarfi við sögubílinn Æringja og SFS létu til sín taka með fræðslu og skemmtun. Móðurmálsvikunni lauk svo með málþingi í Norræna húsinu. 

Myndin hér að ofan er ú leikskólanum Ösp þar sem haldið var upp á móðurmálsvikuna m.a. með því að fagna fjölbreytileika móðurmála barnanna í leikskólanum. Börnin komu með fjölmargar bækur að heiman skrifaðar á ýmsum tungumálum. Nicole leikskólastjóri í Ösp segir að henni hafi verið sagt minnst 100 sögur upp úr þessum bókum sem foreldrar lesa fyrir börnin heima á móðurmálinu.