Metþátttaka í skrúðgöngu Fjölmenningardags Reykjavíkurborgar

Mannlíf Menning og listir

""

Gríðarlegur fjöldi fólks tók þátt í fjölþjóðlegu skrúðgöngunni á Fjölmenningardegi Reykjavíkurborgar. Talið er að á bilinu 1500 - 2000 manns hafi tekið þátt og réði gleðin ríkjum, dansað, sungið og litadýrðin var mikil.

Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar settir Fjölmenningardaginn formlega á Skólavörðuholti klukkan 13 í dag. Að því loknu fór skrúðgangan af stað og var gengið niður að Ráðhúsi Reykjavíkur. Talið er að á bilinu 1500 - 2000 manns hafi tekið þátt í göngunni. Þegar í Ráðhúsið kom opnaði fjölþjóðlegur markaður þar sem hægt er að gæða sér á réttum frá ýmsum löndum og skoða varning sem er til sölu. Það hefur verið troðfullt út úr dyrum og mikill áhugi meðal gesta að kynna sér ólíkar hefðir og menningu.

Barnadagskrá er í Iðnó og skemmtidagskrá í Tjarnarbíói. Fjölmenni situr líka og nýtur sólarinnar úti við tjörnina.

Af skemmtiatriðum má nefna Sirkús Íslands, indverskan dans, Ingó Veðurguð, Pál Valdimar jójólistamann, Balkandansa og gestir og gangandi geta fengið Nigerian Egele headscarf, eða afríkukórónu. Hoppukastali er fyrir utan Iðnó, boðið verður upp á Origami, gerð pappablóma, handalistaverk, andlitsmálun, blöðrudýr og margt fleira.

Það er af nógu að taka og um að gera að koma niður í Ráðhús Reykjavíkur í góða veðrinu og taka þátt í að fagna fjölmenningunni.