Borgarbókasafn, Borgarsögusafn og Listasafn Reykjavíkur, í samvinnu við Bókmenntaborgina, bjóða upp á kvöldgöngu fimmtudaginn 3. júlí klukkan 20 þar sem menningarlíf borgarinnar verður kynnt á sex tungumálum.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, leiðir upphaf göngunnar. Gengið verður um miðborgina og verður menningarlífið kynnt á „íslensku fyrir byrjendur“, ensku, pólsku, víetnömsku, arabísku og frönsku. Hvar eru bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og skemmtilegu staðirnir? Hvað er ókeypis? Hvað gerist um helgar? Hvað er fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna?
Að göngunni lokinni hittast hóparnir í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15, þar sem boðið verður upp á hressingu. Fimleikadúett frá Sirkus Íslands skemmtir með sínum frábæra húmor og leyfir þeim sem vilja að taka þátt.
Lagt af stað frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 kl. 20 og tekur gangan um klukkustund en dagskránni lýkur um kl. 22. Þátttaka er ókeypis. Allir eru velkomnir!