Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt tillögur starfshóps um leiðir til að efla hreyfingu skólabarna.
Tillögurnar starfshópsins eru:
- Íþrótta- og sundkennsla verði metin sérstaklega í heildarmati grunnskóla.
- Grunnskólabörn verði hvött til að ganga/hjóla í og úr skóla- og frístundastarfi.
- Hreyfing verði aukin í frímínútum og skoðað verði hvort fyrirkomulagi þeirra verði breytt.
- Leitað verði leiða til að auka hreyfingu skólabarna í byrjun skóladags.
- Kynnt verði sérstaklega fyrir foreldrum mikilvægi hreyfingar í upphafi skóladags.
- Leitað verði leiða til að auka hreyfingu stúlkna
- Kanna möguleika á því að endurvekja íþróttaskólann.
- Skipuleggja sambærilegt málþing með íþróttakennurum og starfsfólki frístundamiðstöðva reglulega
Tillögum starfshópsins verður komið í farveg og jafnframt vakin athygli á öðrum ábendingum frá íþróttakennurum og öðrum þátttakendum á málþingi sem starfshópurinn stóð fyrir á liðnu ári.