Sextán grunnskólanemendur úr Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ kepptu til úrslita í Stóru upplestrarkeppninni í Ráðhúsinu á dögunum. Mattías Löve úr Melaskóla lenti í 1. sæti, Rakel Ósk Sigurðardóttir Grandaskóla í 2. sæti og Rafnhildur Rósa Atladóttir í Austurbæjarskóla í því þriðja.
Tjarnarsalurinn í Ráðhúsinu var þétt setinn á meðan keppendurnir sextán spreyttu sig á texta úr bókini Ertu guð afi? eftir Þorgrím Þráinsson og lásu þvínæst ljóð.
Þeir sem tóku þátt í keppninni voru,
Ragnheiður M. Benediktsdóttir Vesturbæjarskóla
Steinunn Lárusdóttir Vesturbæjarskóla
Rakel Ósk Sigurðardóttir Grandaskóla
Bjarki Jónsson Grandaskóla
Arney Íris E Birgisdóttir Melaskóla
Matthías Löve Melaskóla
Þóra Birna Ingvarsdóttir Melaskóla
Einar Vignir Einarson Landakotsskóla
Lúkas Elí Harðarson Háteigsskóla
Snjólaug Vera Jóhannsdóttir Háteigsskóla
Sunna Dís Örvarsdóttir Hlíðaskóla
Ragnheiður Helga Guðjónsdóttir Hlíðaskóla
Bára Sól Björnsdóttir Suðurhlíðarskóla
Elísa Marie Guðjónsdóttir Suðurhlíðarskóla
Atli Gauti Ákason Austurbæjarskóla
Rafnhildur Rósa Atladóttir Austurbæjarskóla
Allir keppendur stóðu sig með prýði og var gaman að hlusta á fallega framsögn þeirra.