Marteinn fékk menningarverðlaun DV

Skóli og frístund

""

Marteinn Sigurgeirsson forstöðumaður myndvers reykvískra grunnskóla fékk í gær menningarverðlaun DV fyrir ævistarf sitt í þágu kvikmyndagerðar. 

Marteinn hefur um áratugaskeið veitt forstöðu myndveri grunnskólanna og unnið þar mikið frumkvöðlastarf á sviði kvikmyndagerðar barna og kvikmyndalæsis. Hann hefur kennt bæði kennurum og nemendum á tæki og tól og alið upp margan kvikmyndagerðarmanninn sem nú gerir garðinn frægan út í hinum stóra heimi. Þá hefur hann ekki síst með lifandi áhuga kynt undir sköpunargleði barna og unglinga sem hafa í kvikmyndagerðinni fundið sér farveg fyrir leik, söng og frásagnarlist í orði og mynd. 



Marteinn hefur líka staðið fyrir árlegri kvikmyndahátíð meðal reykvískra grunnskólabarna þar sem þau hafa keppt um hið eftirsótta Klapptré fyrir bestu myndir í flokki heimildamynda, leikinna stuttmynda og hreyfimynda. Sú hátíð er elsta kvikmyndahátíð landsins og fer sívaxandi. 

Við óskum Marteini innilega til hamingju með þessa viðurkenningu.