Markaðsgleði við Bernhöftstorfu á laugardag

Umhverfi Mannlíf

""

Bernhöftstorfan hefur fengið nýtt hlutverk sem markaðstorg og verður því fagnað með gleðilátum við formlega opnun þess á laugardag kl. 13:00.

Sirkus Íslands og hljómsveitin White Signal lyfta á laugardag stemningunni á torginu fyrir framan Bernhöftstorfuna.  Svæðið er nú til afnota fyrir markaðssölu og mun fjölbreyttur hópur nýta sér það í sumar og falbjóða margvíslegan varning. Stærstu markaðsdagarnir verða um helgar en torgið er þó ávallt opið þeim sem hafa söluleyfi.  Skemmtiatriði og aðrir viðburðir verða auglýstir sérstaklega.



White Signal er skipuð sjö félögum á aldrinum 14 til 17 ára.  Hljómsveitin hefur meðal annars unnið jólalagasamkeppni Rásar 2 undanfarin tvö ár og  í sumarvinnu síðustu tvö sumur hafa þeir skemmt borgarbúum.



Sirkus Íslands er hópur hæfileikaríks fólks í sirkuslistum sem sameinar krafta sína undir stjórn Lee Nelson. Sirkusinn hefur starfað frá hausti 2007.

Í sátt við umhverfið

Götu- og torgsala er leyfisskyld hvort sem hún fer fram á torgum, götum, gangstéttum eða í almenningsgörðum. Reykjavíkurborg endurnýjaði fyrir skömmu reglur um götu- og torgsölu og er þeim ætlað að glæða borgina lífi og auka við fjölbreytni í starfsemi og þjónustu í miðborginni, auk þess að gera hana áhugaverðari og  litríkari.  Áhersla er lögð á að sölustarfsemi sé í sátt við nærumhverfi sitt og umgengni til fyrirmyndar.

Áhugasömum um markaðssölu er bent á vefsíðuna  www.reykjavik.is/gotuogtorgsala Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar heldur utan um leyfisveitingar.