Þriðjudaginn 4. nóvember kl. 17.15 í Félagsmiðstöðinni, Hæðargarði 31 fjallar Eyja Margrét Brynjarsdóttir um hvaða gildi eru sameiginleg öllum manneskjum?
Ef við höfum slík gildi, þurfum við þá ekki að gera ráð fyrir mannlegu eðli? Og ef það er til eðli, er þá líka til óeðli? Er eitthvað sérstakt sem gerir það að verkum að betra sé að vera eðlilegur en óeðlilegur? Spurt er hvernig hugmyndir um manngildi og manneðli tengjast og hugurinn látinn reika um kosti og galla þess að vera eðlilegur.
Eyja lauk doktorsprófi í heimspeki frá Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2007 með frumspeki og heimspeki hugans sem sérsvið. Hún starfar sem aðjúnkt í heimspeki við Háskóla Íslands auk skrifta og rannsókna á ýmsum viðfangsefnum í frumspeki, heimspeki hugans, vísindaheimspeki og femínískri heimspeki.
Allir velkomnir, aðgangseyrir er 500 krónur.