Nemendur í Fossvogsskóla stunda listsköpun í frímínútum og mála úti þegar veður leyfir.
Sigurbjörn Helgason myndmenntakennari hefur á góðviðrisdögum aðstoðað börnin og sett út trönur, pappír, málningu og pensla. Listverkin sem verða til úti undir berum himni eru síðan hengd upp á göngum Fossvogsskóla öllum til yndis og ánægju.