Samspil ljóss og myrkurs verður magnað á Vetrarhátíð sem haldin verður í Reykjavík 6.-15. febrúar. Markmið hátíðarinnar er að lýsa upp mesta skammdegið í febrúar með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum en yfirskrift hátíðarinnar er Magnað myrkur!
Dagskráin verður að þessu sinni einkar glæsileg en fjölmargir listamenn munu leggja sitt af mörkum til að skapa einstaka stemningu í borginni. Ljósalistaverk eftir innlenda og erlenda listamenn verða tendruð og ljósaviðburðir munu eiga sér stað um alla borg þegar byggingar og almenningsrými verða lýst upp með fjölbreyttum hætti.
Meginstoðir Vetrarhátíðar 2014 verða Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalistaverk. Aðrir skemmtilegir viðburðir á hátíðinni eru tónleikarnir Denver Calling Reykjavík, snjóskurður, heimsdagur barna og ráðstefna. Nánari upplýsingar um dagskráliði og dagsetningar eru á heimasíðu Vetrarhátíðar.
Hátíðin verður sett í Hljómskálagarðinum fimmtudaginn 6. febrúar kl. 19.30. Opnunaratriðið verður verk eftir Circle 6 sem býður áhorfandum að rannsaka samband ljóss og hreyfingar. Áhorfendur verða virkir þátttakendur í sjónarspili verksins sem er óskilgreint, opið og teygjanleg víxlverkun rýmis og skúlptúrs. Circle 6 eru listamennirnir Inuk Silis Høegh (Grænlandi/Danmörku), Arild M. Kalseth (Noregi), and Amelie Deschamps (Frakklandi/Kanada).
Af nógu verður að taka á þessum dimmu vetrardögum þar sem magnað myrkur fær að njóta sín í Reykjavík og munum við leika okkur að andstæðum ljóss og myrkurs á Vetrarhátíð.