Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Breiðholti

""

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar í Breiðholti fór fram í Seljakirkju miðvikudaginn 19. mars sl. Þar kepptu tíu ungmenni úr 7. bekk, en undankeppnir höfðu farið fram í öllum fimm skólunum fyrr í vetur. Fjölmenni hlýddi á lesturinn sem var skipt í þrjá hluta; fyrst lásu keppendur kafla úr bókinni „Ertu Guð afi?” eftir Þorgrím Þráinsson, síðan ljóð eftir Erlu og að lokum ljóð að eigin vali. 

Auk upplestrarkeppninnar voru flutt þrjú tónlistaratriði, en þar komu fram hljómsveit drengja úr 6. bekk í Ölduselsskóla, Sigríður Vala Kvaran nemendi í Seljaskóla spilaði vals á fiðlu og kór Seljaskóla söng þrjú íslensk lög undir stjórn Vilborgar Þórhallsdóttur. Þjónustumiðstöð Breiðholts bauð gestum upp á veitingar í hléi.

Þegar úrslit voru kunngjörð kom í ljós að Ölduselsskóli átti tvo fulltrúa í efstu sætunum. Í fyrsta sæti var Þórunn Ásta Árnadóttir og í öðru sæti var Margrét Björgvinsdóttir. Máney Guðmundsdóttir úr Hólabrekkuskóla varð síðan í þriðja sæti. Vinningshöfum og þátttakendum öllum er hér með óskað innilega til hamingju með góðan árangur - og þeir og allir aðrir hvattir til að halda áfram að lesa sér til gagns og gamans!

Umsjónarmaður keppninnar í ár var Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi í Þjónustumiðstöð Breiðholts. Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði.