Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í 7. bekk í Laugardal, Háaleitis- og Bústaðahverfum var haldin í Grensáskirkju miðvikudaginn 19.mars. Lesararnir voru 12 og komu frá Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla, Háaleitisskóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla og Vogaskóla. Undirbúningur þeirra var til fyrirmyndar og voru þeir skólum sínum til mikils sóma.
Að þessu sinni voru skáld keppninnar Þorgrímur Þráinsson og Guðfinna Þorsteinsdóttir sem orti undir skáldanafninu Erla. Lesnir voru valdir kaflar úr bókinni Ertu Guð afi? eftir Þorgrím og ýmis ljóð eftir Erlu. Einnig lásu keppendur ljóð að eigin vali. Nemendur úr Tónskóla Sigursveins fluttu tónlist milli atriða í dagskránni með glæsibrag. Árni Daníel spilaði á trompet, Hulda Kristín á selló og þær Sigrún Sól og Rán spiluðu fjórhent á píanó.
Félag íslenskra bókaútgefenda færði öllum keppendum bók að gjöf með nokkrum ljóðum Guðfinnu Þorsteinsdóttur, Erlu. Fjögurra manna dómnefnd valdi þrjá keppendur sem sigurvegara og færði Sesselja G. Sigurðardóttir frá Röddum þeim verðlaun og Íslandsbanki peningaverðlaun.
1.verðlaun hlaut Helga Björg Óladóttir Breiðagerðisskóla, 2.verðlaun Auður Tiya Pálmadóttir, Vogaskóla og 3.verðlaun Urður Heimisdóttir, Langholtsskóla.
Aðrir lesarar og varamenn voru:
Sigríður Halla Eiríksdóttir, Vogaskóla
Signý Ylfa Sigurðardóttir, Langholtsskóla
Sigurbjörg Birta Pétursdóttir, Laugalækjarskóla
Sara Hlín Hjartardóttir, Laugalækjarskóa
Margrét Helga Kristjánsdóttir, Breiðagerðisskóla
Guðrún Birna Pétursdóttir, Háaleitisskóla
Sigríður Berglind Hermannsdóttir, Háaleitisskóla
Benedikt Guðmundsson,Fossvogsskóla
Þórunn Guðmundsdóttir,Fossvogsskóla
Ingvar Freyr Snorrason, Breiðagerðisskóla
Elísabet Friðriksson, Fossvogsskóla
Reynir Aron Magnússon, Laugalækjarskóla
Þórunn Elísa Þórisdóttir, Háaleitisskóla
Lovísa Halldórsdóttir, Vogaskóla
Að Stóru upplestrarkeppninni standa ár hvert Raddir; samtök um vandaðan upplestur og framsögn,í samvinnu við skólaskrifstofur, skóla og kennara um land allt. Í Reykjavík annast þjónustumiðstöðvar hverfanna skipulag.
Markmið samtakanna Radda með upplestrarkeppni í 7. bekk er:
- Að vekja athygli og áhuga á vönduðum flutningi og framburði íslensks máls.
- Að allt ungt fólk læri að njóta þess að flytja móðurmál sitt, sjálfu sér og öðrum til ánægju.
- Að efla virðingu ungs fólks fyrir móðurmálinu, sjálfu sér og öðrum.