Breska dagblaðið Guardian birtir í dag lista yfir tíu bestu evrópsku söfnin þar sem ekki þarf að greiða aðgangseyri. Meðal þeirra er Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Í umfjöllun blaðsins kemur fram að í safninu séu um fimm milljónir ljósmynda og þær elstu séu frá ofanverðri 19. öld. Einnig megi þar finna merkilega safngripi sem tengjast sögu ljósmyndarinnar og að séu þar reglulega settar upp áhugaverðar sýningar eftir samtímaljósmyndara, erlenda sem innlenda.
Önnur söfn sem The Guardian tilnefnir eru:
Nýlistasafnið í París,
Borgarsafn Amsterdam,
Minningarreitur við Berlínarmúrinn,
Þjóðminjasafn Danmerkur í Kaupmannahöfn,
Bernardo-safnið í Lissabon,
Beaux-Arts listasafnið í Nice,
Florence Nightingale-safnið í Istanbúl,
Frelsissafnið í Róm,
Prado-safnið í Madríd.
Umfjöllun The Guardian.