Sunnudaginn 7. desember kl.15.30 - 17.00 verða ljósin kveikt á jólatrénu á Austurvelli. Jólatré á Austurvelli hefur um áratuga skeið markað upphaf jólahalds í borginni. Gerður G. Bjarklind kynnir dagskrána en meðal þeirra sem koma fram eru Sigríður Thorlacius og Helgi Björnsson, sem syngja jólalög ásamt hljómsveit.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs flytja stutt ávörp og að því loknu kveikir níu ára gömul stúlka, Lilja Rán Gunnarsdóttir, ljósin á trénu. Lilja Rán rekur ættir bæði til Noregs og Íslands.
Heyrst hefur að Giljagaur, Gluggagægir og Bjúgnakrækir verði á sveimi á Austurvelli og ætli að segja börnunum sögur og syngja jólalög.
Á jólatrénu er jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra en þeir hafa jafnan prýtt jólatréð á Austurvelli. Það er einmitt Giljagaur sem er níundi jólasveinninn í jólaóróanum. Bubbi Morthens og Linda Björg Árnadóttir leggja félaginu lið með túlkun sinni á Giljagaur – Bubbi hefur gert kvæði um Giljagaur og Linda Björg hannaði óróann. Allur ágóði af sölu óróans rennur til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt við málefnið.
Dagskrá hátíðarinnar verður túlkuð á táknmáli, heitt kakó og kaffi mun verma kaldar hendur og bílastæðahúsið í Ráðhúsinu verður opið til að auðvelda gestum aðgengi að hátíðarsvæðinu.