Listamannaspjall í Ásmundarsafni

Mannlíf Menning og listir

""

Baldur Geir Bragason, Björk Viggósdóttir og Þór Sigurþórsson ræða við gesti um verk sín á sýningunni „Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn“ sem stendur yfir í Ásmundarsafni.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eiga það sameiginlegt að vinna þrívíð verk eða abstrakt rýmisverk. Þeir notast gjarnan við óhefðbundinn efnivið og leyfa efni, formi og rými að stýra efnistökum og lokaútkomu verkanna.

Á meðan sýningunni stendur munu þrír listamenn hverju sinni ræða um verk sín við safngesti. Þriðja og síðasta listamannaspjallið fer fram þann 27. apríl sem er síðasti dagur sýningarinnar.

Listamannaspjallið hefst kl. 15. Aðgangur er 1.300 kr. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortsins.