Listahátíðin List án landamæra var sett með hátíðlegri athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 11. apríl.
Hátíðin var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra árið 2003 og hefur síðan verið árlegur viðburður í Reykjavík. Fjölmörg skemmtiatriða voru á opnunarhátíðinni sem náði hápunkti þegar hljómsveitin Pollapönk tók lagið við góðar undirtektir viðstaddra
Markmið hátíðarinnar er að bæta aðgengi, fjölbreytni og jafnrétti í menningarlífinu, að leita nýrra tækifæra, ekki takmarkana. Á hátíðinni er list fatlaðs fólks komið á framfæri og með samstarfi við ófatlað listafólk.
List án landamæra 2014 mun standa yfir í rúman mánuð, frá 11. apríl – 20. maí, með verkefnum um land allt. Frítt er á alla viðburði hátíðarinnar.