Leikskólinn Mýri heldur á fimmtudaginn 12. júní sína árlegu Skerpluhátíð. Að þessu sinni er líka verið að fagna stórafmæli Mýrar, en leikskólinn er 25 ára gamall um þessar mundir. Hátíðin hefst kl. 15.00 og vonast er til að sjá sem flesta foreldra, systkin, afa, ömmur, gamla mýrara og aðra velunnara Mýrar.
Garðurinn verður skreyttur að vanda um morguninn og boðið upp á andlitsmálningu. Þá verður farið í leiki, pylsur grillaðar og fleira skemmtilegt gert.
Hátíðin verður helguð afmælisveislu leikskólans og að því tilefni sýnd myndasýning frá síðustu 25 starfsárum Mýrar.
Þá mætir Sirkus Íslands á svæðið og skemmtir gestum. Allir hjartanlega velkomnir.