Afmælishátíð Björtuhlíðar verður haldin föstudaginn 13. júní næstkomandi. Foreldrar, fyrrverandi nemendur og starfsmenn eru hjartanlega velkomnir að fagna með okkur.
Dagskrá :
Klukkan 14.30 byrjar afmælið með móttuku gesta í Efri- og Neðri Björtuhlíð, Hamraborg, sem er 50 ára og Sólbakka, sem er 40 ára.
Haldin verður sýning úr starfi leikskólans og sýndar ljósmyndir frá liðnum árum.
Boðið verður uppá kaffi og köku, harmonikkuleik og börnin taka lagið fyrir gesti.
Klukkan 15.45 koma allir gestir saman í Efri- Björtuhlíð (Hamraborg) þar sem Sirkus Íslands skemmtir.