Leikskólabörn með á Airwaves-hátíðinni

Skóli og frístund

""

Elstu börnin á Miðborg skemmtu tónleikagestum í Hörpu í upphafi tónlistarhátíðinnar. 

Leikskólinn Miðborg hefur það að meginstefnu að vera lista- og menningarleikskóli, en hann er starfræktur í þremur húsum í miðborg Reykjavíkur. „Okkur fannst vel við hæfi að skemmta gestum Airwaves í Hörpu með söng á meðan þeir biðu í röð eftir því að fá armböndin sín“ segir Andri Eyvindsson kórstjóri „Öldungakórs Leikskólans Miðborgar“.



Að sögn kórstjórans vakti söngur barnanna mikla lukku og þótti honum börnin standa sig með mikilli prýði. „Kórinn hefur nú þegar sungið inn á tvo hljómdiska og við stefnum á enn frekari sigra“.

 Í Öldungakór Leikskólans Miðborgar eru elstu börn frá öllum starfsstöðvum leikskólans – Njálsborg, Barónsborg og Lindarborg. Verkefnið hefur verið styrkt sem þróunarverkefni af Reykjavíkurborg.



Það var augljóst að gestum Hörpu var skemmt, enda ekki það skemmtilegasta að standa í röð. Það má því segja að leikskólabörnin hafi verið með fyrstu tónlistarmönnum sem skemmtu fólki með tónleikum á Airwaves – hátíðinni sem nú stendur yfir.