Leiklistarnámskeið í Söguhring kvenna

Mannlíf Menning og listir

""

Nú gefst frábært tækifæri til að hlæja mikið og taka þátt í nýju og skapandi verkefni Söguhrings kvenna! Boðið verður upp á leiklistarnámskeið í Söguhringnum frá og með sunnudeginum 12. janúar og fram í maí. Námskeiðið verður haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og Borgarbókasafni, Gerðubergi 3-5. Umsjón hafa þær Helga Arnalds og Aude Busson.

Hist verður tvisvar til þrisvar í mánuði; dagana 12. og 26. janúar, 2. og 16. febrúar, 2. 16. og 30. mars, 13. og 27. aðril og 11. maí. 

Námskeiðið er ókeypis og í boði Söguhrings kvenna, sem er samstarfsverkefni W.O.M.E.N- Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Borgarbókasafns Reykjavíkur.



Allar konur er velkomnar á námskeiðið. Skráning er hjá Amelia Mateeva: amelia@womeniniceland.is



Yfirskrift námskeiðsins er Hlustað á efnið og er markmið þesss fyrst og fremst að eiga skemmtilegar og skapandi stundir saman. Þátttakendum er boðið uppá ýmsar leikrænar æfingar sem miða að því að tala og vinna saman í hóp, treysta og hlusta á hver aðra. Auk þess læra þátttakendur að tjá sig með öðrum hætti en í daglegu lífi. Það verður unnið með myndrænt leikhús og hlutaleikhús í spuna.