Leikjasmiðir úr Frosta sigursælir

Skóli og frístund

""

Fimm strákar úr félagsmiðstöðinni Frosta unnu samkeppni í tölvuleikjagerð í keppninni Game Creator 2014.

Samtök leikjaframleiðenda (IGI) í samvinnu við Háskólann í Reykjavík efndu á dögunum til samkeppni í tölvuleikjagerð. Nokkrir unglingar úr félagsmiðstöðinni Frosta tóku þátt í keppninni, þeir  Flóki Sigurjónsson, Óðinn Ásbjarnarson, Úlfur Árnason, Kveldúlfur Kjartansson og Jón Stefan Pétursson en skipuðu liðið The Flying Dutchman games.

Skemmst er frá því að segja að þeir hlutu viðurkenningu fyrir teymisblástur (most inspiring team) fyrir leikinn Tom & Moonfury – Adventure Through Afterlife. Allir eru þeir félagar í ,,nördaklúbbnum“ sem er klúbbur á vegum félagsmiðstöðvarinnar Frosta. Drengirnir taka reglulega þátt í frístundarstarfi á vegum Frosta og eru góðar fyrirmyndir. Fyrir utan tölvuleikjahönnun er klúbburinn að skrifa skáldsögu um uppvakninga. Á heimasíðu nörd norðursins er hægt að sjá brot úr leiknum þeirra og lesa meira um keppnina.