Laga hellur á Laugavegi

Framkvæmdir Samgöngur

""

Miðvikudaginn 12. febrúar er vinnuflokkur á vegum Reykjavíkurborgar að lagfæra hellulögn á gatnamótum Laugavegs og Vitastígs.  Skipt verður út steinlögn á gatnamótum og undirlag lagfært. 

Af þessum sökum þarf að loka fyrir bílaumferð niður Laugaveg við Barónsstíg og einnig upp Vitastíg frá Hverfisgötu. Gert er ráð fyrir að viðgerð taki allan daginn frá klukkan 8:00 – 17:00. Hjáleiðir eru greiðfærar um Barónsstíg, niður Grettisgötu og Frakkastíg.