„Lad det swinge!“ Hljómur Norðursins í orðum og tónum á Café Lingua

Menning og listir Mannlíf

""

Café Lingua er skemmtilegur tungumálavettvangur á vegum Borgarbókasafns Reykjavíkur. Á Café Lingua geta þeir sem hafa áhuga á að efla tungumálakunnáttu sína mætt og átt samskipti á ýmsum tungumálum og kynnst mismunandi tungumála- og menningarheimum. 

Café Lingua verður að þessu sinni í Norræna húsinu fimmtudaginn 13. febrúar kl. 16.00. Reynt verður að varpa ljósi á sameiginlegar rætur Norðurlandanna og mismunandi Eurovision-menningu þjóðanna.

Wivian Renee Kristiansen deilir með okkur þekkingu sinni og ástríðu fyrir Eurovision. Hún mun fara yfir Eurovison-sögu Norðurlandanna og kynna eitt lag frá hverju landi sem sungið hefur verið á móðurmálinu.

Wivian stýrir óvenjulegri og spennandi heimasíðu „escNorge.net“, sem er stærsta norska síðan hvað varðar Eurovision-umfjöllun, með sérstaka áherslu á Norðurlönd. Erindi hennar verður á norsku.

Í framhaldi af umfjöllun hennar gefst tækifæri til að kynna sína uppáhalds norrænu tónlist og njóta annarra, á meðan orðið verður frjálst á „blandínavísku“ við borðin.

Allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis. Kaffi og te á könnunni.



Dagskrá Café Lingua „Lad det swinge“ er samstarf Borgarbókasafns, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda við Háskóla Íslands og Norræna hússins.



Nánar um Café Lingua

eða í Facebook-hópnum Café Lingua – lifandi tungumál.