Kynningarfundur um breytingar á deiliskipulagi Austurhafnar verður haldinn í Hörpu mánudaginn 13. janúar kl. 17 – 18. Fundurinn er haldinn á vegum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Á fundinum verða kynntar breytingar á deiliskipulagi Austurhafnar en reiturinn afmarkast af Tryggvagötu, Lækjargötu, Kalkofnsvegi og hafnarbakkanum. Í breytingunni, felst m.a. breytt lega Geirsgötu sem mun mynda hornrétt gatnamót við Lækjargötu. Stærð byggingarreita, byggingarmagn og hæðir húsa breytast einnig.
Hægt er að senda inn athugasemdir við deiliskipulagið til. 3. Febrúar á skipulag@reykjavik.is
Allir eru velkomnir á fundinn sem hefst kl. 17 í Hörpu, mánudaginn 13. janúar.