Íþróttafréttir eru fluttar af körlum og verulega hallar á kynin í allri fjölmiðlun í landinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Kynlegum tölum sem gefnar eru út 8. mars í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna.
Karlar eru ráðandi þegar kemur að stjórnun fjölmiðla í landinu. Konur eru þó fleiri þegar horft er til ritstjóra viku- og tímarita. Íþróttafréttir eru eingöngu fluttar af körlum og þegar umfjöllun Fréttablaðsins og Morgunblaðsins um íþróttir var skoðuð í febrúar þegar Ólympíuleikarnir stóðu sem hæst hallaði verulega á konur. Þetta kemur fram í Kynlegum tölum sem gefnar eru út í fjórða sinn á vegum mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti.
Í bæklingnum er forvitnileg tölfræði sem varpar ljósi á ólíka stöðu karla og kvenna eins og hún birtist á ýmsan hátt í borginni og á landinu. Sem dæmi má taka að stærsti hluti viðtakenda fjárhagsaðstoðar í Reykjavíkurborg eru einhleypir, barnlausir karlar, eða 2.048. Meira en helmingi færri einstæðar mæður fengu fjárhagsaðstoð eða 995 en þær eru næststærsti hópurinn sem fær fjárhagsaðstoð hjá borginni. Einnig má nefna að konur sem búa við örorku vegna stoðkerfissjúkdóma eru næstum þrisvar sinnum fleiri en karlarnir en ekki er mikill munur á kynjum þegar litið er til geðraskana. Fram kemur að meira en helmingi fleiri karlmenn en konur fóru í áfengismeðferð hjá SÁÁ 2013.
Ef litið er til ófrjósemisaðgerða kemur í ljós að á árinu 1982 fóru mun fleiri konur en karlar í ófrjósemisaðgerð eða 581 kona og 37 karlar. Árið 2013 hafði þetta snúist við en þá fóru 483 karlar í ófrjósemisaðgerð en 123 konur.