Laugardaginn, 26. júlí verður götumatarmarkaðurinn Krás opnaður í Fógetagarðinum í Reykjavík. Þar munu kokkar frá ýmsum veitingastöðum borgarinnar útbúa lostæti undir berum himni. Hægt verður að setjast niður, fá sér rósa- og freyðivínsglas og njóta kræsinga á staðnum eða taka með sér heim ef fólk vill það frekar.
Krás verður opin á laugardögum í sumar frá kl. 13.00 -18.00 en lokadagur markaðarins er á Menningarnótt, 23. ágúst næstkomandi.
Markmiðið með markaðinum er fyrst og fremst að gera Reykjavík að enn skemmtilegri matarborg. Allir eru velkomnir og geta vinir, ömmur, afar, börn, kærustupör, einstaklingar, frænkur og frændur notið þess að vera saman og gæða sér á góðum mat.
Hugmyndasmiðir og verkefnastjórar götumarkaðarins eru þau Gerður Jónsdóttir og Ólafur Örn Ólafsson en götumatarhátíðin er unnin í samvinnu við Reykjavíkurborg og er hluti af Torg í biðstöðu verkefni borgarinnar. Þverfaglegur hönnunarhópur á vegum borgarinnar sér síðan um allt heildarútlit markaðarins, bása, bekki og borð.
Hér er hlekkur á facebook síðu hátíðarinnar: www.facebook.com/gotumatur.