Kosningum um Betri hverfi lýkur á miðnætti

Betri hverfi

""

Kosningum um Betri hverfi lýkur á miðnætti í kvöld. Kosið er um verkefni í öllum hverfum borgarinnar líkt og tvö síðustu ár.

Borgin veitir 300 milljónum til framkvæmda á verkefnunum á þessu ári. Kosið er á slóðinni http://kjosa.betrireykjavik.is og þurfa kjósendur að auðkenna sig með íslykli. Alls mun Reykjavíkurborg því verja 900 milljónum til verkefna sem fegra og bæta hverfin á síðustu þremur árum.

Um fimmleytið í dag höfðu yfir fimm þúsund atkvæði borist í kosningunum.

Hér má sjá tvö myndbönd þar sem íbúar ræða um hugmyndir sem þeir sendu inn og kosnar voru í fyrra og komu til framkvæmda það ár. Þær sýna vel hversu mikilvægar svona kosningar eru fyrir hverfin og íbúalýðræðið í borginni. Reykjavíkurborg hvetur alla til að taka þátt í kosningunum og hafa þar með áhrif á sitt nánasta umhverfi.